Shih Tzu deild HRFÍ

Forsíða
Home
Deildin
Club
Fréttir
News
Tegundin
The breed
Greinar
Articles
Sýningar
Shows
Gagnagrunnur
Database
Myndasafn
Gallery
Tilkynningar
Message board

Skýring einkunna/explanation of show results

 

Í gæðadómi gefur dómari hundi einkunn fyrir útlit, hreyfingar og skapgerð og miðarvið staðal  hundakynsins,
án samanburðar við aðra hunda sem skráðir eru í sama flokk.
Þannig geta margir hundar í sama flokki, fengið sömu einkunn.
Í flokki þar sem gæðadómur fer fram, eru eftirfarandi einkunnir gefnar:

 

Excellent: Hundurinn kemst mjög nálægt staðli hundakynsins að gerð og byggingu,

sýndur í frábæru líkamlegu formi og í góðu andlegu jafnvægi; stórglæsilegur og af háum

gæðum. Kostir hans sem fulltrúa hundakynsins eru svo augljósir að óverulegir

útlitsgallar draga hann ekki niður; tilhlýðlegur munur er á tík / rakka.

Very good: Hundurinn er dæmigerður að gerð og bygging hans er í góðu jafnvægi.

Líkamlegt form er gott. Minniháttar gallar eru þolanlegir, enda kemur engin þeirra niður

á heilbrigðri byggingu hundsins. Þessa einkunn má einungis veita hundi sem býr yfir

glæsileik.


Good
: Hundurinn er viðunandi hvað varðar gerð, en hefur sýnilega galla.


Sufficient
: Hundurinn er sæmilegur að gerð en er þó ekki týpiskur fulltrúi hundakynsins,

eða í lélegu líkamlegu formi.


0. einkunn (Disqualified):
Hundur er ekki dæmigerður að gerð og byggingu fyrir

hundakynið; hann sýnir árásargirni eða hegðun sem er í algeru ósamræmi við eiginleika

hundakynsins; hann er ekki með tvö eðlileg og rétt staðsett eistu, hann er með tann- eða

kjálkagalla, litar- eða feldgalla eða er albínói. Þessi einkunn er einnig gefin hundi þar sem

gerð eða bygging hans kemur niður á heilsu hans eða almennu heilbrigði og hundi sem er

með galla sem er óásættanlegur (disqualifying) samkvæmt staðli hundakynsins.

Ástæður 0 einkunnar skal alltaf tilgreina í umsögn og á niðurstöðublaði. Hundur, sem í

þrígang hefur fengið einkunnina 0 vegna skapgerðar / hegðunar, skal útilokaður frá

keppni á hundasýningum HRFÍ.

Hundar sem ekki hljóta einhverja af ofangreindum einkunnum, ljúka keppni með

umsögnina:


Ekki hægt að dæma
(EHD). Þessi umsögn er gefin hundi sem á því augnabliki sem

dómarinn er að dæma hann, hreyfir sig ekki, víkur sér undan handfjötlun og skoðun

dómara t.d. á tönnum, líkamsbyggingu, skotti og eistum, stekkur stöðugt upp á sýnanda,

reynir að komast út úr hringnum eða hegðar sér þannig eða er þannig á sig kominn

líkamlega að ekki er hægt að dæma hreyfingar hans eða líkamsbyggingu. Sama getur átt

við um hund sem dómari telur sig sjá merki um eða hefur ríka ástæðu til að gruna að

aðgerð hafi verið gerð á eða hann meðhöndlaður þannig að það geti haft áhrif á dóm.

Ástæðu umsagnarinnar skal getið í umsögn og á niðurstöðublaði.


Meistaraefni / Meistarastig. 
Veita má meistaraefni þeim Excellent hundum sem teljast
 framúrskarandi að gerð og eru
að öllu leyti rétt byggðir með tilliti til ræktunarmarkmiðs tegundarinnar.

Meistarastig er síðan veitt þeim rakka / tík sem bestu sætaröðun hlýtur í keppni um besta

rakka og bestu tík tegundar, af þeim hundum sem koma til álita fyrir stigið og hafa áður

hlotið meistaraefni. Komi hundar í sætum 1-4 ekki til álita fyrir stigið, veitir dómari það

hundi úr hópi þeirra sem eftir standa með meistaraefni og til álita koma fyrir stigið.

34. Hundur kemur ekki til álita fyrir meistarastig:

a) ef hann er þegar íslenskur sýningameistari (ISSCH) / íslenskur meistari (ISCH).

b) ef hann hefur þegar fengið tilskilinn fjölda íslenskra meistarastiga til að öðlast

meistaranafnbót (ISCH eða ISSCH) og a.m.k. eitt þeirra eftir 24 mánaða aldur

(fullcertaður).

Sýnandi skal láta hringstjóra vita að hundur hans komi ekki til álita fyrir meistarastig.


Alþjóðlegt meistarastig (CACIB)

Á alþjóðlegum sýningum keppa rakkar og tíkur um alþjóðlegt meistarastig (CACIB) og

vara-alþjóðlegt meistarastig (Res-CACIB), í keppni um besta rakka og bestu tík tegundar.

Dómarinn tilnefnir rakka og tík sem bestu sætaröðun hlýtur af þeim hundum sem til álita

koma fyrir stigið og sem hann telur af yfirburða gæðum, og fær sýnandi spjald undirritað

af dómara því til staðfestingar. FCI, Alþjóðasamtök hundaræktarfélaga, hafa endanlegt

ákvörðunarvald um veitingu stigsins. Einungis þeir hundar sem hlotið hafa Excellent

koma til greina fyrir CACIB. Hundur sem skráður er í ungliðaflokk eða öldungaflokk

kemur ekki til álita fyrir CACIB.

Veita má Res-CACIB þeim rakka / tík sem næst stendur í sætaröðun þeim sem fengið

hafa CACIB og til álita koma fyrir stigið.


FCI staðfestir ekki CACIB tillögu veitta hundi sem:

a) þegar hefur fengið titilinn C.I.B. (alþjóðlegur meistari) eða C.I.E. (alþjóðlegur

sýningameistari) af FCI

b) hefur ekki fullar 3 kynslóðir (utan viðkomandi hunds) skráðar í FCI viðurkennda

ættbók

c) Er ,,fullcertaður” og lágmark eitt ár hefur liðið á milli fyrsta og síðasta stigs

d) Er af hundakyni sem ekki er viðurkennt af FCI


sk

                                               

 

Á döfinni
Events

Tenglar
Links

Spjallið
Forum

  

Höfundarréttur © 2024 öll notkun á efni vefsíðunnar er óheimil nema með skriflegu leyfi eigenda.