Frá: Valgerður Júlíusdóttir [vala@hrfi.is] Sent: 28. nóvember 2012 17:34 To: Soffia K Kwaszenko Cc: Súsanna Antonsdóttir; Helga Þórðardóttir; Stella Gisladottir (briard@briard.is); Elísabet Kristjánsdóttir (paradisepassion.dogs@gmail.com); hrfi@hrfi.is Efni: RE: Ræktunarbann Shih Tzu hunda
Til stjórnar Shih tzudeildar,
Neðangreint erindi ykkar var samþykkt á stjórnarfundi Hundaræktarfélags Íslands þann 21. nóvember 2012.
„Til stjórnar H.R.F.Í. Reykjavík, 14.11.2012 Síðumúla 15 105 Reykjavík. Í framhaldi af fundi okkar dags. 31.10.2012 óskar stjór Shih Tzu deildar eftir eftirfarandi breytingu á reglum er varða PRA sjúkdómin í Shih Tzu hundum: „ Undaneldisdýr verði augnskoðuð með tilliti til PRA. Vottorð ekki eldri en 13 mánaða niðurstöður skulu vera til staðar FYRIR pörun. Óheimilt er að para og/eða rækta undan hundi sem greinst hefur með staðfest PRA. Þar sem Íslenski Shih Tzu stofnin er mjög lítill verður reynt að vinna skipulega að því að fyrirbyggja frekari útbreiðslu með skipulagðri ræktun næstu 5 árin. Þeir hundar sem eru í ræktunarbanni nú þegar, eru orðin 3ja ára geta sótt um undanþágu frá banninu eftir nánara samkomulagi við stjórn deildarinnar, eru augnskoðaðir „hreinir“ og eru góðir fullrúar tegundarinnar „ Stjórn deildarinnar vill árétta að bæði Lorna Newman og Finn Bóserup hafa árettað að við gætum verið að gera meiri skaða en gott með þessu víðtæka banni sem er á tegundinni hér á landi. Betra sé að vinna með hundum þar sem bakgrunnurinn þekkist og þannig eiga hægara með að skipuleggja ræktun með það að markmiði að útiloka PRA sjúkdóminn, en að flytja inn ný óþekkt dýr sem enginn deili eru á. Á fyrirlestri Finn Boserup DVM varðandi arfgenga augnsjúkdóma og bréf sem barst í kjölfarið, svo og ýtarlegri greinagerð Lornu Newman BVM & S Cert. V. Opthal. MRCVS. eftir augnskoðun á Shih Tzu hundum hér á landi, hafa þau bæði staðfest að engin erfðafræðileg né vísindaleg rök séu fyrir því hvernig þessi sjúkdómur þ.e. PRA, erfist og er því engan vegin hægt að fullyrða að hvolpar sem fæðast undan dýrum skyldum þeim sem eru sýktir geti erft sjúkdóminn. Eða þá að þeir sem bera sjúkdóminn, eigi hvolpa sem koma til með að bera sjúkdóminn. Einnig er óskað eftir því við stjórn H.R.F.Í. að deildin megi fá sér til aðstoðar og eftirfylgni Lornu Newman BVM & S Cert. V. Opthal. MRCVS, sem hefur sýnt mikinn áhuga á sjúkdómnum. Að gefnu tilefni hefur Lorna verið að safna DNA prufum til rannsóknar sjúkdómnum. Einnig mætti benda á að mun auðveldara verði að fá afkvæmi undan sýktum hundum til að koma í augnskoðun, ef að þeir eru ekki sett sjálfkrafa í ræktunarbanni. Með von um góðar undirtektir og úrlausn mála Shih Tzu hundum á Íslandi f.h. Stjórn Shih Tzu deildar”
Með bestu kveðju, f.h. stjórnar Hundaræktarfélags Íslands
Valgerður Júlíusdóttir
sk |