Susanne Mølgaard Kaarsholm frá Danmörku mun koma og augnskoða fyrir félagið dagana 19.-21.maí nk. Susanne mun augnskoða á Akureyri á fimmtudeginum 19.maí og á skrifstofu HRFI Síðumúla 15, 108 Reykjavík 20.-21.maí.
Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður.
Síðasti skráningardagur í augnskoðun er miðvikudagurinn 4. maí.
Augnskoðun hunda kostar 6100 fyrir virka félagsmenn. Hundaeigendur, sem ekki eru félagsmenn í HRFÍ, en með hunda í ættbók HRFÍ, geta skráð sig í augnskoðun gegn hærra gjaldi þ.e. kr. 12.200. Hundar virkra félagsmanna ganga fyrir í augnskoðun.
Það er skylda hjá fjölmörgum hundategundum að niðurstaða augnskoðunar liggi fyrir hjá undaneldisdýrum fyrir pörun. Vinsamlegast kynnið ykkur sérreglur ræktundardeilda fyrir „ykkar" hundategund.
Dýralæknirinn augnskoðar hunda með tilliti til arfgengra sjúkdóma sem finnast í fjölmörgum hundategundum.
Úr lögum HRFÍ
•Áður en hundur er augnskoðaður, mjaðma- og/eða olnbogamyndaður, skal hann örmerktur (húðflúr).
•Auk þess skulu hundar sem taka þátt í viðburðum á vegum félagsins t.d. sýningum, veiði- hlýðni og sporaprófum svo og skapgerðarmati, einnig vera örmerktir (húðflúr).
•Þetta ákvæði gildir fyrir alla hunda, óháð fæðingardegi.