FCI efndi til myndlistarsamkeppni í tilefni af 100 ára afmæli samtakanna árið 2011. Viðfangsefnið var Hundurinn! Keppnin var auglýst á vefsíðu HRFÍ 25. janúar 2010. Öllum var heimil þátttaka og keppt var í nokkrum aldursflokkum. Börn á aldrinum 2ja-18 ára frá hinum ýmsu löndum sendu inn myndir í keppnina. Nokkur áhugasöm börn frá Íslandi skiluðu inn myndum til HRFÍ, sem sendi þær til FCI í keppnina. FCI bárust yfir 200 myndir frá 22 löndum. Dómnefnd FCI valdi 64 myndir úr 13 mismunandi flokkum og voru þær sýndar á myndlistasýningu í mars-apríl 2011 í Thuin í Belgíu þar sem kosning fór fram um myndirnar. Þann 8. apríl 2011 fór fram verðlaunaafhending þeirra 9 mynda sem fengu flest stig í keppninni. Engin mynd frá Íslandi lenti í verðlaunasæti. Nú hefur FCI gefið út bók með þessum 64 myndum sem voru valdar í forkeppnina. Í bókinni er ein mynd frá Íslandi sem komst í 64 mynda forkeppnina. Þetta er mynd eftir Atla Þór E. Kristinsson, í aldursflokknum: 9-10 ára. Hægt er nálgast nánari upplýsingar og skoða myndir af sýningunni á vefsíðu FCI undir slóðinni: http://www.fci.be/conc_dess_10_palmares.aspx
Við óskum Atla Þór E. Kristinssyni innilega til hamingju með myndina sína. Gaman ef Atli hefði samband við skrifstofu.
http://www.hrfi.is/displayer.asp?page=44&Article_ID=1486&NWS=NWS&ap=NewsDetail.asp&p=ASP~Pg44.asp